Fiskvinnsla á Hólmavík
Fersk ýsa úr Húnaflóa
Vilji Fiskverkun vinnur ferskar ýsuafurðir úr línuveiddri ýsu úr Húnaflóa. Ferskleiki hráefnis er grundvöllur þeirra gæðaviðmiða sem við vinnum eftir.
Um fyrirtækið
Vilji Fiskverkun ehf á Hólmavík var stofnað árið 2024 á grunni úthlutunar sértæks aflamarks Byggðastofnunar til Strandabyggðar. Á Hólmavík hefur ekki verið rekin fiskvinnsla síðan árið 1944 en frá árinu 1965 til 2023 var rækjuvinnslan Hólmadrangur starfrækt í þorpinu. Það var því mikið framfaraskref í atvinnumálum á Hólmavík að fá fiskvinnslu á staðinn, eftir að rækjuvinnslunni lokaði, auk fjölda afleiddra starfa sem skapast af starfseminni.
Vilji Fiskverkun er staðsett í fyrrum húsakynnum Hólmadrangs að Kópnesbraut 2 á Hólmavík. Frá upphafi hefur fyrirtækið lagt áherslu á vinnslu ferskra afurða á ýsu veiddri í Húnaflóa. Afurðir Vilja hafa á skömmum tíma fengið mjög gott orðspor fyrir gæði hjá söluaðilum og neytendum, en helsta framleiðslan er ýsuhnakkar, bakflök, fersk og frosin flök á Evrópu-, Ameríku- og innanlandsmarkað.

Samstarf við línuútgerðir
Húnaflóinn er gjöfull á stóra og góða ýsu sem Vilji leggur áherslu á að nýta. Samstarf við línuútgerðir á svæðinu er vinnslunni mikilvægt þar sem ferskleiki hráefnis er grundvöllur þeirra gæðaviðmiða sem Vilji vill vinna eftir.
Línuútgerðirnar Vissa útgerð ehf og Æður ehf veiða ýsu inn til vinnslunnar árið um kring, auk þess sem fengin er línuýsa frá Útgerðarfélaginu Skúla ehf frá Drangsnesi og Jakobi Valgeiri í Bolungarvík.
„Ferskleiki hráefnis er grundvöllur þeirra gæðaviðmiða sem Vilji vill vinna eftir.“
Bátarnir
Vilji Fiskverkun gerir ekki út eigin báta en línubátarnir Hlökk ST 66 og Herja ST 166, í eigu Vissu Útgerðar ehf, landa öllum sínum ýsuafla inn til vinnslunnar, auk Hilmis ST 1 sem er í eigu Æðurs ehf á Hólmavík. Þessir bátar eru í föstum viðskiptum við vinnsluna á ársgrundvelli.


Hlökk ST 66
- Skipaskrárnúmer: 2696
- Tegund: Fiskiskip
- Útgerðarflokkur: Krókaaflamarksbátur
- Heimahöfn: Hólmavík
- Útgerð: Vissa Útgerð ehf
- Skráð lengd: 11,35 m
- Brúttótonn: 14,98
- Smíðastöð: Trefjar ehf
Hlökk ST gerir út á landbeitta línu megnið af árinu en fer á grásleppunet á vorin. Almennt er róið með 48 bala og 3 menn í áhöfn. Skipstjóri er Pétur Matthíasson.

Herja ST 166
- Skipaskrárnúmer: 2766
- Tegund: Fiskiskip
- Útgerðarflokkur: Krókaaflamarksbátur
- Heimahöfn: Hólmavík
- Útgerð: Vissa Útgerð ehf
- Skráð lengd: 11,35 m
- Brúttótonn: 14,98
- Smíðastöð: Trefjar ehf
Herja ST gerir út á línu með beitningavél allt árið um kring. 4 menn eru í áhöfn og er skipstjóri Þórarinn Leifur Sigurgeirsson.

Hilmir ST 1
- Skipaskrárnúmer: 2390
- Tegund: Fiskiskip
- Útgerðarflokkur: Krókaaflamarksbátur
- Heimahöfn: Hólmavík
- Útgerð: Æður ehf
- Skráð lengd: 11,98 m
- Brúttótonn: 15,47
- Smíðastöð: Trefjar ehf
Hilmir ST gerir út á línu með línutrekkt og uppstokkun í landi megnið af árinu en fer á grásleppu á vorin. 2 menn eru í áhöfn og er skipstjóri Jón Vilhjálmur Sigurðsson.
Framleiðsla
Vilji Fiskverkun leggur mikla áherslu á gæðaeftirlit í vinnslunni. Sérstök áhersla er lögð á kælingu og rétta meðhöndlun hráefnis frá veiði til afhendingar afurðar. Hráefni er metið við komu inn til vinnslu og stöðugt eftirlit er með snyrtingu, pökkun og hitastigi flaka við framleiðslu.
Notast er við gæða- og eftirlitskerfið HACCP.

Ýsa
Meginafurð Vilja Fiskverkunar ehf er ýsa og er framleitt úr um 1000 tonnum af hráefni á ársgrundvelli. Hnakkaframleiðsla beinist að öllu leyti á Evrópu, bakflök á innanlandsmarkað og fersk heil flök á Ameríkumarkað. Frosin afurð fer að mestu leyti til Bretlands og til Ameríku að hluta til.
Ýsa er vinsæll matfiskur sem hefur fylgt okkur Íslendingum frá örófi alda. Hvort sem ýsan sé steikt, soðin, ofnbökuð eða þurrkuð, er hún afskaplega bragðgóð. Ýsan lifir aðallega á botndýrum meginhluta lífs síns.
Til eru þjóðsögur um ýsuna. Í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar er til dæmis að finna sögu um samskipti fjandans og ýsunnar og ber ýsan enn merki þeirra. Við veiðum ýsuna eingöngu á línu í Húnaflóa.
Þorskur
Framleiðsla þorskafurða er um 200 tonn af hráefni á ári. Afurðir fara á Evrópu- og innanlandsmarkað.
Gæði og eftirlit
Uppbygging og viðhald húsnæðis er mikilvægur þáttur í framleiðslu og matvælaöryggi og er nauðsynlegt að það mæti þeim kröfum sem gerðar eru til matvælavinnslu og uppfylli kröfur reglugerða.
Verkstjóri í móttöku er Þröstur Áskelsson og ber hann ábyrgð á gæðaathugunum við móttöku og hráefnisráðstöfun. Framleiðslustjóri og yfirmaður gæðaeftirlits er Anna Jackowska sem sér um gæðaathuganir við snyrtingu og pökkun.

Samfélagsleg ábyrgð
Vilji Fiskverkun leggur ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð. Við nýtum þjónustu í heimabyggð eins og kostur er og styðjum kerfisbundið við félags-, menningar- og íþróttastarf til að styrkja samfélagið og efla lífsgæði í nærsamfélaginu.
Eignarhald
Vilji Fiskverkun er hlutafélag í eigu Vissu Útgerðar ehf, Egg Ráðgjafar ehf og Gámaþjónustu Hólmavíkur ehf. Bæði Vissa Útgerð og Gámaþjónustan eru í eigu einstaklinga sem fædd eru og uppalin á Hólmavík og eru fyrirtækin hluti af grunnstoðum samfélagsins.

Sanngjörn viðskipti og traust
Vilji Fiskverkun leggur mikið upp úr sanngjörnum viðskiptum, trausti og góðum samskiptum við söluaðila okkar og viðskiptavini. Helstu söluaðilar okkar á afurð til útflutnings eru Bacco Seaproducts, Iceland Seafood og Ice Mar. Okkar helstu samstarfsaðilar innanlands eru Von Harðfiskverkun og Hafið Fiskverslun.
Hafa samband
Vilji Fiskverkun ehf
Kópnesbraut 2
510 Hólmavík
Sími 845 2748
Tengiliðir
Björk Ingvarsdóttir
Framkvæmdastjóri / Manager
bjork@vilji.is
Sigríður Guðmundsdóttir
Skrifstofa / Office
skrifstofa@vilji.is
Andri Freyr Arnarsson
Markaðsdeild / Marketing
andri@vilji.is
Anna Jackowska
Framleiðsla og gæðaeftirlit / Production and quality control
anna@vilji.is
Þröstur Áskelsson
Vinnslan / Procedure
throstur@vilji.is
